« Green-IT | Main | Nonparametric estimation of highly oscillatory signals »
Skrifað af karl | September 2, 2008
Fyrirlestur Vals Þórs Ólafssonar á vegum IEEE á Íslandi í samstarfi við rafmagns og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands.
Staður: Háskóli Íslands, VRII stofa 157, 16:30 Mánudaginn 8. September.
Útdráttur:
Kvik segulómsmyndgerð (e. functional Magnetic Resonance Imaging (fMRI)) hefur gerbylt því hvernig taugavísindamenn, sálfræðingar, o.fl. rannsaka heilann. Með því að nýta sér að segulómsmyndgerðartæki (MRI) getur skynjað breytingar á blóðflæði í heilanum er hægt að búa til myndir sem sýna virkni heilans. Mæligögn úr fMRI tækjum eru ekki hægt að birta sem myndir heldur þarf að beita merkjafræðilegum aðferðum til þess að varpa þeim á form sem hentar til myndbirtingar. Í fyrirlestrinum verður fjallað um slíkar aðferðir og þá sér í lagi aðferðir sem byggja á bestun kostnaðarfalla með ítrunaraðferðum.
Valur Ólafsson útskrifaðist með BS próf frá rafmagnsverkfræðiskor, verkfræðideildar Háskóla Íslands vorið 2000. Hann fékk MS gráðu frá University of Michigan, Ann Arbor 2003. Hann er nú PhD kandidat við University of Michigan, Ann Arbor.
Topics: Óflokkað | No Comments »
Comments