Recent Posts

Tenglar

Archives


« Nonparametric estimation of highly oscillatory signals | Main | Ráðstefna um þráðlaus fjarskipti »

Hagnýt stýrikerfi byggð á tímasvörunum kerfa á lokuðu formi

Skrifað af mou | September 30, 2008

 Fyrirlesari:  Gísli Herjólfsson

Titill: Hagnýt stýrikerfi byggð á tímasvörunum kerfa á lokuðu formi.

Staður: Háskóli Íslands, VRII stofa 157, 16:30 Mánudaginn 6. Október.

Útdráttur:   Segja má að verkfræði snúist að miklu leyti um að skilja og hafa stjórn á efnum og kröftum náttúrunnar í okkar þágu. Stýritækni felur í sér að kerfisgreina þessa þætti og stýra þeim. Hagnýta stýritækni er að finna alls staðar í kringum okkur allt frá flóknustu tækjum, niður í einföldustu áhöld. Á síðustu árum hefur rannsóknarteymi í stýritækni við rafmagns- og tölvuverkfræðideild unnið að lausnum á bestunarstýringum og líkanssmækkunum kerfa með því að nota lokuð form tímasvarana þeirra. Í fyrirlestrinum verður fjallað um stýritækni almennt, þá vinnu sem unnin hefur verið við rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands í stýritækni og doktorsverkefni Gísla Herjólfssonar; „Hagnýt stýrikerfi byggð á tímasvörunum kerfa á lokuðu formi”.

Gísli Herjólfsson útskrifaðist með BS og MS próf frá rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands vorið 2004.
Hann stundar nú PhD nám í stýritækni við sömu deild

 

Flokkur: Óflokkað | Engin ummæli »

Topics: Óflokkað | No Comments »

Comments