« Hagnýt stýrikerfi byggð á tímasvörunum kerfa á lokuðu formi | Main | IEEE fyrirlestur: CMS – Framtíðarlausn í þráðlausum mælingur frá Controlant »
Ráðstefna um þráðlaus fjarskipti
Skrifað af karl | October 17, 2008
Ráðstefnan ISWCS 2008 (International Symposium on Wireless Communications Systems) verður haldin á Hótel Sögu dagana 22. – 24. október. Ráðstefnan er haldin af IEEE á Íslandi og hafa nokkrir félagar unnið að undirbúningi hennar. Von er á um 150 fyrirlesurum hvaðanæva að og má segja að þarna komi saman margir helstu sérfræðingar heimsins í þráðlausum fjarskiptum.
Þann 21. október verða haldin námskeið (tutorials) um nokkur efni þráðlausra fjarskipta. Þetta eru kynningar sem eiga erindi við tæknimenn sem starfa á þessu sviði.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna á vef hennar
http://www.iswcs.org/iswcs2008/index.html
Smellið á “Session Scedules” til að sjá dagskrá ráðstefnunnar og á “Tutorials” til að sjá efni námskeiðanna.
Skráningargjald á námskeiðin er 15 þús. kr. og 40 þús. kr. á ráðstefnuna. Þeir sem vilja taka þátt eru beðnir að senda tölvupóst til Karls Sölva Guðmundssonar
karlsg@hi.is
Fyrir hönd IEEE á Íslandi
Karl Sölvi Guðmundsson
Formaður
Topics: Óflokkað | No Comments »
