« Ráðstefna um þráðlaus fjarskipti | Main | Contextual unmixing of geostatistical data based on Gaussian mixture distributions and Markov random fields »
IEEE fyrirlestur: CMS – Framtíðarlausn í þráðlausum mælingur frá Controlant
Skrifað af mou | November 13, 2008
Fyrirlestur á vegum IEEE á Íslandi og rafmagns og tölvuverkfræðideildar Háskóla Íslands
Fyrirlesarar: Gísli Herjólfsson, Erlingur Brynjólfsson
Titill: CMS – Framtíðarlausn í þráðlausum mælingum frá Controlant
Staður og tími: Háskóli Íslands, VRII, stofa 157. Mánudagurinn 17. nóvember klukkan 16:30
Útdráttur:
CMS stendur fyrir Controlant Monitoring System og er þráðlaust skynjaranet sem er hannað frá grunni á Íslandi og bíður upp á mjög fjölbreytta notkunarmöguleika. Kerfið samanstendur af móðurstöð, sem getur haldið utan um tugi skynjara hverju sinni, auk hvers konar skynjara sem keyra á rafhlöðum sem endast í u.þ.b. 5 ár. Contolant bíður einnig upp á GPRS módem sem sér um að safna mæligögnum í miðlægan gagnagrunn sem er aðgengilegur í gegnum internetið. Einnig er hægt er að tengja CMS kerfið við önnur kerfi með serial, usb eða Bluetooth gáttum og Controlant biður upp á hugbúnað fyrir CMS kerfið í PC- og lófatölvur.
CMS einingarnar eru í sterkbyggðum vatnsheldum umbúðum og henta því vel utan- og innandyra, sem dæmi um mælisvið má nefna hita- og rakaskynjara, hita- og þrýstiskynjara, hitaprópur, rafmagns- og vatnsrennslimælar, viðveruskynjanir, almennar A/D mælingar o.m.fl.
Stærstu kostir CMS eru að kerfið er alsjálfvirkt, uppsetningartími er í algjöru lágmarki, skynjarar kerfisins geta mælt nánast hvað sem er og eru auk þess ódýrir, meðfærilegir og
keyra á rafhlöðum með góðan endingartíma.
Controlant fékk nýverið styrk frá Íbúðalánasjóði til að hanna CMS einingar til rakamælinga í gólfplötum nýbygginga í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Fyrirtækið hannaði nýjan hraðamælabreyti í LandCruiser 200 fyrir Arctic Trucks, hefur séð um þróun nýs greiðslukerfis í lófatölvum hjá Sorpu. Við höfum aðlagað CMS að SagaSystem, sem er ökuritakerfi fyrirtækisins ND o.m.fl.Verkefnin eru mörg, möguleikarnir endalausir. Okkur langar að sýna þér inn í heim CMS og vonumst til að sem flestir sjái sér fært að mæta.
Sjá nánari upplýsingar á www.controlant.com.
Topics: Óflokkað | No Comments »
