Recent Posts

Tenglar

Archives


« IEEE fyrirlestur: Computer architecture, past present and future | Main | IEEE fyrirlestur: Advances in Spectral-Spatial Classification of Hyperspectral Imagery »

IEEE fyrirlestur: Ný úthljóðsmyndtækni til greiningar á hjartasjúkdómum

Skrifað af mou | September 24, 2009

Mánudaginn 28 september klukkan 12:20-13:20 í stofu 158 í VR II, Háskóla Íslands mun dr. Ragnar Ólafsson halda fyrirlestur sem nefnist Ný úthljóðsmyndtækni til greiningar á hjartasjúkdómum.

Útdráttur:

Úthljóðsmyndtækni (e. ultrasound) er víða notuð við greiningu á hjartasjúkdómum. Kostir hennar eru góð upplausn, há rammatíðni, lágur kostnaður og að hún er skaðlaus. Hún hefur hins vegar léleg birtuskil (e. contrast) sem veldur því að túlkun úthljóðsmynda krefst töluverðrar reynslu. Rannsóknir Ragnars hafa miðast að því að þróa nýjar aðferðir sem aukið geta birtuskil í úthljóðsmyndum og þar af leiðandi bætt greiningu hjartasjúkdóma. Hann hefur annars vegar unnið að þróun svokallaðrar “ultrasound current source density imaging” (UCSDI) og hins vegar ljóshljóðstækni (e. photoacoustics). UCSDI byggir á rafhljóðshrifum (e. acousto-electric effect) og getur kortlagt rafsvið með hárri upplausn sem afmarkast af brennidepli úthljóðsgeislans. Í þessum fyrirlestri verður UCSDI tækninni lýst og beitingu hennar til þess að nema virkjunarstrauma hjartans. Í ljóshljóðstækni er leysigeislapúlsi beint inn í líkamann. Leysigeislinn snökkhitar líkamsvefina sem þenjast út snarlega og senda frá sér hljóðbylgju. Þeim mun dekkri sem vefirnir eru því sterkari er hljóðbylgjan. Með þessarri tækni fást úthljóðsmyndir sem lýsa ljósgleypni vefjarins. Hér verða ljóshljóðsmyndir teknar með klínískri úthljóðsvél sýndar og beitingu tækninnar til þess að rekja skuggaefni (e. contrast agent) í hjartavöðva lýst.

Ragnar Ólafsson hlaut B.S. gráðu í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands 2002. Árið 2002 hlaut hann Fulbright styrk til þess að stunda framhaldsnám í heilbrigðisverkfræði (e. biomedical engineering) við University of Michigan í Ann Arbor, Michigan, þar sem hann lauk doktorsprófi árið 2008. Hann vinnur fyrir Dr. Russell Witte í Department of Radiology við University of Arizona. Rannsóknasvið Ragnars eru myndun lífrafsviðs (e. biopotentials) með úthljóðsmyndtækni (e. ultrasound) og beitingu ljóshljóðsmyndtækni (e. photoacoustics) á hjartasjúkdóma.

Topics: Óflokkað | No Comments »

Comments