Recent Posts

Tenglar

Archives


« IEEE fyrirlestur: Neural networks for classification and change detection | Main | IEEE fyrirlestur: Rauntíma háhraðamyndataka með aðstoð tölvusjónar við rannsóknir á ávaxtaflugum »

IEEE — VFI

Skrifað af karl | March 9, 2010

Rafmagnsverkfræðingur ársins 2009 – kallað eftir tilnefningum
Verkfræðingafélag Íslands (VFÍ) og Institute of Electrical and Electronics Engineers (IEEE) veita sameiginlega viðurkenningu, sem veitt er þeim rafmagnsverkfræðingi sem þykir skara fram úr í störfum sínum hverju sinni – á sviði rafmagnsverkfræði eða hefur haft mikil áhrif á íslenskt samfélag.
Viðurkenningin er veitt annað hvert ár og nú er í þriðja sinn kallað eftir tilnefningum. Þeir sem tilnefndir eru þurfa ekki að vera félagsmenn í VFÍ eða IEEE, en þeir skulu að öllu jöfnu vera Íslendingar eða starfandi á Íslandi og búsettir á Íslandi síðastliðin þrjú ár.
Tilnefningar skulu sendar eigi síðar en 12. mars n.k. til skrifstofu VFÍ:
Verkfræðingafélag Íslands
Engateigi 9
105 Reykjavík
Sími: 535-9300
Símbréf: 535-9311
Netfang: skrifstofa@verktaekni.is
Sameiginlegar nefndir VFÍ og IEEE á Íslandi annast umsjón viðurkenningarinnar. Val þess sem hana hlýtur verður tilkynnt 14. maí n.k. Hér er tækifæri til þess að veita viðurkenningu í okkar hópi fyrir framúrskarandi störf tengd rafmagnsverkfræði eða framlag til samfélagsins.

Topics: Óflokkað | No Comments »

Comments