« IEEE fyrirlestur: Rauntíma háhraðamyndataka með aðstoð tölvusjónar við rannsóknir á ávaxtaflugum | Main | International Workshop on Advances in Modeling and Optimization of High Frequency Structures, Reykjavik 2010 »
Rafmagnsverkfræðingur ársins 2009 — sameiginleg viðurkenning VFI og IEEE
Skrifað af karl | May 12, 2010
Sameiginleg viðurkenning Verkfræðingafélags Íslands og IEEE, alþjóðlegs félags rafmagnsverkfræðinga sem er með um 395 þúsund félagsmenn í yfir 150 löndum, verður veitt við hátíðlega athöfn í húsakynnum VFÍ að Engjateig 9 Föstudaginn 14. maí 2010 kl. 17:00.
Markmiðið viðurkenningarinnar er m.a. að vekja athygli á árangri rafmagnsverkfræðinga í starfi og afrekum þeirra sem vert er að halda á lofti. Viðurkenningin er veitt þeim rafmagnsverkfræðingi sem hverju sinni þykir hafa skarað fram úr í störfum sínum á sviði rafmagnsverkfræði eða fyrir íslenskt samfélag. Auglýst var eftir tilnefningum og voru skilyrði þau að viðkomandi væri Íslendingur eða starfandi á Íslandi. Sameiginleg dómnefnd VFÍ og IEEE á Íslandi valdi síðan viðurkenningarhafa úr 6 tilnefningum.
Í tilefni af viðurkenningarafhendingunni kemur hingað til lands fulltrúi IEEE, Brian Harrington gjaldkeri IEEE á svæði 8, þ.e. Evrópa, Afríka og Mið-Austurlönd.
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Topics: Óflokkað | 1 Comment »

July 22nd, 2010 at 9.45
Buy:Zithromax.Cialis Professional.Maxaman.Viagra Professional.Viagra Super Force.Levitra.Tramadol.Viagra.Viagra Super Active+.Super Active ED Pack.Viagra Soft Tabs.Cialis Super Active+.Soma.VPXL.Cialis.Cialis Soft Tabs.Propecia….