Um félagið
IEEE á Íslandi var stofnað 17. nóvember árið 2000.Félagið er undirfélag alþjóðlega rafmagnsverkfræðifélagsins Institute of Electrical and Electronics Engineer(IEEE) sem hefur um 350 þúsund félaga. Á Íslandi eru um 120 félagsmenn.
Tilgangur félagsins er að efla tengsl félagsmanna IEEE á Íslandi og standa fyrir starfsemi á fræðasviði sínu með fyrirlestrum, kynningum og ráðstefnum. Í þessu sambandi verða stofnuð undirfélög á helstu áhugasviðum félagsmanna á Íslandi. Undirfélagið um merkjafræði, rásir og kerfi er fyrsta undirfélagið af þessu tagi.
Íslandsdeildin er hluti af svæði 8 , sem nær yfir Evrópu, Austurlönd nær og Afríku.
Stjórn félagsins:
Formaður – Karl S. Guðmundsson
Varaformaður – Sæmundur E. Þorsteinsson
Ritari – Magnús Örn Úlfarsson
Gjaldkeri – Tómas P. Rúnarsson
Stjórn nemendadeildar:
Formaður – Ólafur Davíð Bjarnason
Varaformaður – Egill Tómasson
Ritari – Haukur Ingi Heiðarsson
Gjaldkeri – Ragnar Sigurðsson
